Ályktanir XI. sambandsþings Samiðnar 2025

XI. sambandsþing Samiðnar sem haldið var 8. og 9. maí samþykkti eftirfarandi ályktanir:

Ályktun um húsnæðismál og uppkaup fjárfesta á íbúðarhúsnæði

Þing Samiðnar lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu húsnæðismála á Íslandi þar sem fjárfestar hafa keypt stóran hluta nýrra íbúða undanfarin ár. Þessi þróun hefur valdið óeðlilegum hækkunum á húsnæðisverði og skert möguleika almennings, sérstaklega ungs fólks og fjölskyldna, á því að eignast eigið húsnæði.

Samiðn skorar á stjórnvöld að grípa tafarlaust til aðgerða sem takmarka möguleika fjárfesta á að yfirtaka húsnæðismarkaðinn og tryggja að húsnæði á Íslandi sé fyrst og fremst heimili fólks en ekki fjárfestingartæki.

Jafnframt er skorað á sveitarstjórnir og Reykjavíkurborg að haga sínum skipulagsmálum með þeim hætti að það stuðli að lækkun byggingarkostnaðar og auki framboð á smærri íbúðum.

Ályktun um aukið aðgengi að iðn- og tækninámi

Þing Samiðnar lýsir yfir vonbrigðum með viðvarandi skort á aðgengi að iðn- og tækninámi á Íslandi. Árlega er hundruðum umsókna um iðn- og tækninám hafnað vegna skorts á fjármagni, húsnæði og kennsluaðstöðu, á sama tíma og þúsundir iðn- og tæknifólks vantar til að mæta þörfum atvinnulífsins.

Samiðn skorar á stjórnvöld að setja í forgang vinnu við að fjölga nemaplássum. Þá þarf tafarlaust að hefja framkvæmdir við nýjan tækniskóla auk nýs iðnskóla miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu sem sinnt geta framtíðarþörfum atvinnulífs og samfélags. Jafnframt þarf að bæta aðstöðu og byggja nýja verkmenntaskóla á landsbyggðinni.

Ályktun um ábyrgð fyrirtækja í baráttunni gegn verðbólgu

Þing Samiðnar lýsir yfir vonbrigðum með þá stöðu sem nú ríkir í efnahagsmálum, þar sem fyrirtæki hafa í mörgum tilfellum ekki sýnt nægjanlega ábyrgð og hafa hækkað verð langt umfram tilefni. Launafólk hefur axlað sína ábyrgð með því að samþykkja hóflegar launahækkanir, en fyrirtæki og sveitarfélög hafa ekki staðið við sín loforð.

Samiðn krefst þess að atvinnurekendur og sveitarfélög taki ábyrgð sína alvarlega og virði það samkomulag sem gert hefur verið. Það er grundvallaratriði að fyrirtæki taki þátt í að stuðla að efnahagslegum stöðugleika og hjálpi til við að draga úr verðbólgu með ábyrgri verðlagningu.

Ályktun um alvarleg brot á vinnumarkaði

Samiðn skorar á stjórnvöld að taka strax á alvarlegum brotum á íslenskum vinnumarkaði, þar sem erlent vinnuafl er misnotað, skuldsett eða gert að fórnarlömbum launaþjófnaðar og ómannúðlegra vinnuaðstæðna.

Samiðn skorar á stjórnvöld að tryggja skilvirkt eftirlit með vinnustöðum og að lög og reglugerðir varðandi vinnumarkaðsmál séu virt. Nauðsynlegt er að setja strax viðurlög við brotum á iðnlöggjöf og öðrum lögbrotum á vinnumarkaði, og tryggja að allir starfsmenn njóti sömu réttinda og verndar, óháð uppruna eða þjóðerni.