XI. sambandsþingi Samiðnar lokið

Á XI. þingi Samiðnar sem haldið var 8. og 9. maí sl. var Hilmar Harðarson formaður Félags iðn- og tæknigreina, endurkjörinn formaður Samiðnar til næstu þriggja ára og Jón Bjarni Jónsson formaður Byggiðnar kjörinn varaformaður.

Ráðuneytisstjóri mennta- og barnamálaráðuneytisins, Erna Kristín Blöndal, ávarpaði þingið fyrir hönd ráðherra og Finnbjörn A. Hermannsson ávarpaði þingið fyrir hönd ASÍ.

Einnig hélt Róbert Farestveit, sviðsstjóri hagfræði- og greiningarsviðs ASÍ, fróðlegt erindi um efnahagsmál.

Í setningaræðu sinni lagði formaður áherslu á réttindamál, húsnæðismarkaðinn og iðnmenntun auk mikilvægis þess að ná niður verðbólgu.

Áherslumál þingsins

Helstu áherslur þingsins voru á réttindamál iðnaðarmanna, innlendra og erlendra, og eftirlit með byggingum; mikilvægi iðnmenntunar og nauðsyn þess að fjölga nemaplássum; húsnæðismarkaðinn; verðbólgu og framtíðarsýn sambandsins.

Skipulagsnefndir sem settar voru á laggirnar á síðasta sambandsþingi skiluðu af sér niðurstöðum vinnu sinnar. Starfslýsingar fyrir formann og framkvæmdastjóra voru samþykktar. Laganefndin kynnti breytingartillögur sem voru samþykktar. Starfshópar, þar sem eftirfarandi málefni voru til skoðunar kynntu niðurstöður sínar, minnisblað framkvæmdastjóra, framtíðarhópur og vinnuhópur um réttindaávinnslu, og var þeim vísað til framkvæmdastjórnar til frekari úrvinnslu.

Ályktanir

Í ályktun um húsnæðismál var lýst yfir áhyggjum af stöðu húsnæðismála á Íslandi, þar sem fjárfestar hafa keypt stóran hluta nýrra íbúða undanfarin ár og þannig skert möguleika almennings, sérstaklega ungs fólks og fjölskyldna, á því að eignast eigið húsnæði. Skorað er á stjórnvöld að takmarka möguleika fjárfesta á uppkaupum húsnæðis og sveitarstjórnir að auka framboð á ódýrara húsnæði.

Í ályktun um aukið aðgengi að iðn- og tækninámi lýsti þingið yfir vonbrigðum með viðvarandi skort á aðgengi að iðn- og tækninámi á Íslandi á sama tíma og skortur er á iðnmenntuðu fólki til að mæta þörfum atvinnulífsins. Skorað er á stjórnvöld að fjölga nemaplássum og byggja upp iðnskóla.

Í ályktun um ábyrgð fyrirtækja í baráttunni gegn verðbólgu lýsti þingið vonbrigðum með að fyrirtæki og sveitarfélög hafa hækkað verð langt umfram tilefni á sama tíma og launafólk samþykkti hóflegar launahækkanir. Samiðn krefst þess að atvinnurekendur og sveitarfélög axli ábyrgð á sínum hluta kjarasamninga og hjálpi til við að draga úr verðbólgu með ábyrgri verðlagningu.

Í ályktun um alvarleg brot á vinnumarkaði skoraði Samiðn á stjórnvöld að taka strax á alvarlegum brotum á íslenskum vinnumarkaði og tryggja skilvirkt eftirlit með vinnustöðum. Nauðsynlegt er að setja strax viðurlög við brotum á iðnlöggjöf og öðrum lögbrotum á vinnumarkaði, og tryggja að allir starfsmenn njóti sömu réttinda og verndar, óháð uppruna eða þjóðerni.

Breytingar voru á miðstjórn og sambandsstjórn og var eftirtöldum þakkað fyrir vel unnin störf: Finnbjörn A. Hermannsson, Jóhann Rúnar Sigurðsson, Sigurður Hólm Freysson og Heimir Þ. Kristinsson.