Desemberuppbót 2024

Desemberuppbótin á almennum vinnumarkaði vinnumarkaði, að meðtöldu orlofi, er kr. 106.000 og skal greiðast í síðasta lagi 15. desember miðað við starfshlutfall og starfstíma.

Starfsmenn sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi 1. desember eiga rétt á desemberuppbót. Starfsmenn í ákvæðisvinnu fá greidda desemberuppbót líkt og aðrir.

Sá tími sem starfsmaður er í fæðingarorlofi telst sem starfstími við útreikning desemberuppbótar.

Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla desemberuppbót.

Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.

> Ríkissjóður kr. 106.000,-
> Reykjavíkurborg kr. 119.000,-
> Strætó kr. 115.000,- (enn er ósamið við Strætó bs.)
> Orkuveitan kr. 123.500,-
> Samband íslenskra sveitarfélaga kr. 135.500,-
> Landsvirkjun kr. 154.256,
> Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma kr. 119.000,-