Gegn leyndarhyggju í verðlagsmálum

Stjórn ASÍ-UNG hefur sent frá sér ályktun þar sem skorað er á neytendur að sniðganga verslanir sem úthýst hafa fulltrúum verðlagseftirlits ASÍ: „Stjórn ASÍ-UNG skorar á alla neytendur að svara þeim verslunum sem úthýsa verðlagseftirliti ASÍ með sniðgöngu. Öflugt verðlagseftirlit er órjúfanlegur hluti af kjarabaráttu ASÍ enda er það nauðsynlegt til að lágmarka skaðleg verðbólguáhrif sem nú þegar eru of mikil. Verðhækkanir þrífast best með leyndarhyggju í verðlagsmálum og því er fyrrnefnd úthýsing ekkert annað en löðrungur fyrir almennt launafólk í landinu. Stjórn ASÍ-UNG skorar því á alla neytendur að sniðganga þær verslanir sem úthýsa verðlagseftirliti ASÍ.

Sjá nánar.