Vinnustaðaskírteini

Í byrjun september var  gefinn út staðall fyrir útgáfu vinnustaðaskírteina en í staðlinum er kveðið á um hvað skírteinin verða að uppfylla til að teljast gild.  Skírteinin skulu framleidd úr hörðu efni og skal koma fram á þeim starfsheiti.  Í samkomulagi ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini er kveðið á um að þremur mánuðum eftir útgáfu staðalsins skulu öll ný skírteini gefin út í samræmi við hann og er miðað  við áramótin 2012-13.  Einnig er kveðið á um að endurgerð skírteina sem gefin voru út fyrir gildistöku staðalsins skuli lokið sex mánuðum frá gildistöku hans, sem myndi vera  um mánaðarmótin mars-apríl 2013.  Jafnframt fjölgar þeim starfsgreinum sem falla undir lögin um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.  

Hægt er að nálgast staðalinn hjá Staðlaráði Íslands gegn greiðslu en frekari upplýsingar um framkvæmd samkomulags ASÍ og SA má finna á www.skirteini.is