Orlofsuppbótin kr. 27.800

Orlofsuppbótin, að meðtöldu orlofi, greiðist þann 1.júní miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu (01.05.-30.04), öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða eru í starfi 1.maí. Orlofsuppbótin er kr. 27.800 á almenna markaðnum hjá Reykjavíkurborg og Ríkinu, en kr. 37.000 hjá öðrum sveitarfélögum. Starfsmenn í ákvæðisvinnu fá greidda orlofsuppbót líkt og aðrir.

Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla orlofsuppbót.

Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.

Sjá útreikning orlofsuppbótar.