Launataxtar skv. samkomulagi ASÍ og SA frá 1.júlí 2006
Kauptaxtar eru lágmarkslaun en að öðru leyti gilda þau laun sem um semst á markaði.
Kauptaxtar frá 1.janúar 2007 | ||||
Iðnaðarmenn með sveinspróf | ||||
| Mán.laun | Dagvinna | Yfirvinna | Stórh.v. |
Byrjunarlaun | 186.810 | 1.078 | 1.940 | 2.569 |
Eftir 1 ár | 193.619 | 1.117 | 2.011 | 2.662 |
Eftir 3 ár | 198.955 | 1.148 | 2.066 | 2.736 |
Eftir 5 ár | 204.452 | 1.180 | 2.123 | 2.811 |
| | | | |
Sérhæfðir aðstoðarmenn í iðnaðarstörfum með mikla faglega reynslu í iðngreininni | ||||
| Mán.laun | Dagvinna | Yfirvinna | Stórh.v. |
Byrjunarlaun | 136.273 | 786 | 1.415 | 1.874 |
Eftir 1 ár | 137.432 | 793 | 1.427 | 1.890 |
Eftir 3 ár | 139.749 | 806 | 1.451 | 1.922 |
Eftir 5 ár | 142.067 | 820 | 1.475 | 1.953 |
Kauptaxtar frá 1.júlí 2006 – Samkv. endursk. ASÍ og SA | ||||
Iðnaðarmenn með sveinspróf | ||||
| Mán.laun | Dagvinna | Yfirvinna | Stórh.v. |
Byrjunarlaun | 178.084 | 1.027 | 1.849 | 2.449 |
Eftir 1 ár | 184.575 | 1.065 | 1.917 | 2.538 |
Eftir 3 ár | 189.662 | 1.094 | 1.970 | 2.608 |
Eftir 5 ár | 194.902 | 1.124 | 2.024 | 2.680 |
| | | | |
Sérhæfðir aðstoðarmenn í iðnaðarstörfum með mikla faglega reynslu í iðngreininni | ||||
| Mán.laun | Dagvinna | Yfirvinna | Stórh.v. |
Byrjunarlaun | 129.836 | 749 | 1.348 | 1.785 |
Eftir 1 ár | 130.940 | 755 | 1.360 | 1.800 |
Eftir 3 ár | 133.148 | 768 | 1.383 | 1.831 |
Eftir 5 ár | 135.356 | 781 | 1.406 | 1.861 |
Kauptaxtar frá 1. janúar 2006 – 30.júní 2006 | ||||
Iðnaðarmenn með sveinspróf | ||||
Mán.laun | Dagvinna | Yfirvinna | Stórh.v. | |
Byrjunarlaun | 163.084 | 941 | 1.694 | 2.242 |
Eftir 1 ár | 169.575 | 978 | 1.761 | 2.332 |
Eftir 3 ár | 174.662 | 1.008 | 1.814 | 2.402 |
Eftir 5 ár | 179.902 | 1.038 | 1.868 | 2.474 |
Sérhæfðir aðstoðarmenn í iðnaðarstörfum með mikla faglega reynslu í iðngreininni | ||||
Mán.laun | Dagvinna | Yfirvinna | Stórh.v. | |
Byrjunarlaun | 114.839 | 663 | 1.193 | 1.579 |
Eftir 1 ár | 115.940 | 669 | 1.204 | 1.594 |
Eftir 3 ár | 118.148 | 682 | 1.227 | 1.625 |
Eftir 5 ár | 120.356 | 694 | 1.250 | 1.655 |
Samningur þessi er mánaðarkaupssamningur með þeim réttindum sem slíkum samningi fylgir.
1.1.1.
Launataxtar (sjá tímakaup á bls. 94)
1.1.1.1.
Með gildistöku samnings þessa falla úr gildi allir fyrri launataxtar Samiðnar, sbr. þó gr. 1.1.4. Frá gildistöku samningsins verða launataxtar sem hér segir:
Iðnaðarmenn með sveinspróf
| 2004 | 2005 | 2006 | 2007 |
Byrjun | 147.922 | 155.318 | 163.084 | 170.015 |
Eftir 1 ár | 153.809 | 161.500 | 169.575 | 176.782 |
Eftir 3 ár | 158.424 | 166.345 | 174.662 | 182.085 |
Eftir 5 ár | 163.176 | 171.335 | 179.902 | 187.548 |
Starfsmenn sem lokið hafa skemmra starfsnámi í viðkomandi iðngrein. (Sjá bókun)
Sérhæfðir aðstoðarmenn í iðnaðarstörfum með mikla faglega reynslu í iðngreininni
| 2004 | 2005 | 2006 | 2007 |
Byrjunarlaun | 104.000 | 107.120 | 114.836 | 117.420 |
Eftir 1 ár | 105.000 | 108.150 | 115.940 | 118.549 |
Eftir 3 ár | 107.000 | 110.210 | 118.148 | 120.806 |
Eftir 5 ár | 109.000 | 112.270 | 120.356 | 123.064 |
Launaflokkar starfsmanna án sveinsprófs ná ekki til starfa sem teljast hefðbundin störf verkamanna.
Kauptaxtar eru lágmarkslaunataxtar en að öðru leyti gilda þau laun sem um semst á markaði.
1.1.1.2.
Í ofangreindum launatöxtum er innifalið fæðis-, flutnings- og mætingaskyldugjald.
1.1.1.3.
Starfsaldur miðast við starfsaldur í starfsgrein frá sveinsprófi.
1.1.2.
Launabreytingar á samningstímanum
Laun og aðrir kjaratengdir liðir hækka sem hér segir:
26. apríl 2004 3,25%.
1. janúar 2005 3,0%,
1. janúar 2006 2,5%
1. janúar 2007 2,25%.
1.1.3.
Taxtar nær greiddu kaupi
Með samningi þessum eru lágmarkslaunataxtar Samiðnarmanna færðir nær greiddu kaupi í iðngreinunum og er það gert í fjórum áföngum. Nýir kauptaxtar eiga ekki sjálfkrafa að leiða til hækkunar umfram almennar launahækkanir skv. gr. 1.1.2. Þá skulu launabreytingar samkvæmt samningi þessum í engum tilvikum leiða til minni launahækkana en sem nemur launahækkun skv. gr. 1.1.2. Sjá nánar meðfylgjandi bókun um taxtabreytingarnar.
1.1.4.
Frávik frá nýju kauptaxtakerfi
Starfsmaður sem kýs að halda þeim greiðslum sem hann hefur haft umfram taxta kjarasamnings skal tilkynna vinnuveitanda það skriflega innan 30 daga frá gildistöku samnings þessa. Kemur þá hækkun skv. gr. 1.1.2. á laun hans en kauptaxti hans hækkar ekki að öðru leyti.
1.1.5. Desemberuppbót og orlofsuppbót
1.1.5.1.
Desemberuppbót
Starfsmenn sem hafa verið í fullu starfi allt árið hjá sama fyrirtæki og eru við störf hjá fyrirtækinu í síðustu viku nóvember eða í fyrstu viku desember skulu eigi síðar en 15. desember ár hvert fá greidda sérstaka eingreiðslu, desemberuppbót, sem er kr. 38.500 árið 2004, kr. 39.700 árið 2005, kr. 40.700 árið 2006 og kr. 41.800 árið 2007. Starfsmenn í hlutastarfi sem uppfylla sömu skilyrði skulu fá greitt hlutfallslega. Uppgjörstímabil er almanaksárið, en fullt ársstarf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur, eða meira, fyrir utan orlof. Starfsmenn með skemmri starfstíma skulu fá greitt hlutfallslega miðað við starfstíma sinn. Desemberuppbót er föst tala og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum.
Starfsmaður sem lætur af störfum á árinu vegna aldurs eða eftir 12 vikna samfellt starf á árinu hjá sama atvinnurekanda, skal við starfslok fá greidda desemberuppbót miðað við starfstíma og starfshlutfall á árinu. Sama gildir þótt starfsmaður sé frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu atvinnurekanda lýkur eða í allt að 6 mánuði vegna fæðingarorlofs.
Desemberuppbót að inniföldu orlofi greiðist sjálfstætt og án tengsla við laun.
Byggingamenn
Óski sveinn eða meistari eftir því að desemberuppbót greiðist jafnharðan, reiknast hún sem kr. 18,37 frá og með 26. apríl 2004, kr. 18,92 árið 2005, kr. 19,40 árið 2006 og kr. 19,83 árið 2007 á hverja unna dagvinnustund. Greiða skal orlof á desemberuppbót, sé hún greidd út jafnharðan.
1.1.5.2.
Orlofsuppbót
Starfsmaður, sem hefur áunnið sér fullan orlofsrétt, með starfi hjá sama atvinnurekanda næstliðið orlofsár og er í starfi í síðustu viku apríl eða í fyrstu viku maí, skal við upphaf orlofstöku eða eigi síðar en 15. ágúst fá greidda sérstaka eingreiðslu, orlofsuppbót, kr. 21.100 á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2004, kr. 21.800 á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2005, kr. 22.400 á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2006 og kr. 23.000 á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2007 miðað við fullt starf, en hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma. Fullt starf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.
Orlofsuppbót er föst tala og tekur ekki launabreytingum skv. öðrum ákvæðum.
Láti starfsmaður af störfum vegna aldurs eða eftir 12 vikna samfellt starf á orlofsárinu skal hann við starfslok fá greidda orlofsuppbót vegna áunnins tíma miðað við starfshlutfall og starfstíma. Sama gildir þótt starfsmaður sé frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu atvinnurekanda lýkur eða vegna fæðingarorlofs allt að 6 mánuðum.
Á orlofsuppbót greiðist ekki orlof.
Byggingamenn
Óski sveinn eða atvinnurekandi eftir því að orlofsuppbót sé greidd jafnharðan skal fara með þær greiðslur á sama hátt og kveðið er á um í grein 1.1.5. og skal greiða kr. 10,13 frá og með 26. apríl 2004, kr. 10,43 á árinu 2005, kr. 10,69 á árinu 2006 og kr. 10,93 á árinu 2007 á greidda dagvinnustund. Greiða skal orlof á orlofsuppbót, sé hún greidd út jafnharðan.
1.1.5.3.
Fjarvistir vegna fæðingarorlofs eða þegar kona þarf af öryggisástæðum að leggja niður störf á meðgöngutíma.
Eftir eins árs starf hjá sama vinnuveitanda teljast fjarvistir vegna lögbundins fæðingarorlofs til starfstíma við útreikning desember- og orlofsuppbótar. Sama gildir ef kona þarf að öryggisástæðum að leggja niður störf á meðgöngutíma, sbr. reglugerð um ráðstafanir til þess að auka öryggi og heilbrigði á vinnustöðum fyrir konur sem eru þungaðar, hafa nýlega alið barn eða hafa barn á brjósti.
1.1.6.
Fata- og verkfæragjald
Um þessa kostnaðarliði vísast til 9. kafla samningsins.
1.1.7.
Flokksstjórar og verkstæðisformenn
Sjá 13. kafla samningsins.
1.2. Tímakaup í dagvinnu
1.2.1.
Tímakaup í dagvinnu er fundið með því að deila 173,33 í mánaðarlaun.
1.2.2.
Tímakaup í dagvinnu með kostnaðarliðum er fundið með því að leggja fatagjald við tímakaup í dagvinnu auk verkfæragjalds ef sveinn leggur sér til handverkfæri, sbr. fylgiskjöl nr. 3-6.