Samþykkt miðstjórnar um vaxandi atvinnuleysi og efnahagslegt hrun heimilanna

Miðstjórn Samiðnar lýsir fullri ábyrgð á hendur íslenskum stjórnvöldum á því ástandi sem nú  ríkir í landinu. Við blasir meira atvinnuleysi en þekkst hefur í marga áratugi og framundan er efnahagslegt hrun þúsunda heimila.  Orsakir þessa ástands er að stórum hluta heimatilbúinn vandi  m.a. vegna óstjórnar í íslenskum efnahagsmálum til margra ára  sem hefur einkennst af óstöðugu gengi, mikilli verðbólgu, stjórnlausri gróðahyggju og duglausu eftirliti hins opinbera með fjármálastarfsemi í landinu.  

Miðstjórnin krefst þess að ríkisstjórnin móti skýra stefnu með hvaða hætti verði komist út úr því  ástandi sem er að skapast í landinu og reynt verði með öllum tiltækum ráðum að draga úr afleiðingum þess fyrir einstaklinga, íslensk heimili og fyrirtæki.  Koma verður gjaldeyrismálum þjóðarinnar í þannig horf að fyrirtæki og einstaklingar geti átt eðlileg viðskipti með gjaldeyri og til landsins berist nauðsynlegar vörur.   Mikilvægt er að í  þessum málum verði unnið  hratt því engan tíma má missa. Ef ekkert verður aðhafst  blasir við  að  mikill hluti atvinnulífsins stöðvast með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Mikilvægt er að bregðast nú þegar við vaxandi  atvinnuleysi með því að móta skýra atvinnustefnu sem byggir á  nýtingu íslenskra náttúruauðlinda og þess auðs sem býr í vel menntaðri þjóð.  Opna þarf leiðir fyrir atvinnulaust fólk svo það geti viðhaldið og aukið þekkingu sína og styrkt sig á vinnumarkaði.  Jafnhliða þarf að tryggja því fjárhagslega afkomu  m.a. með því að tryggja því rétt til atvinnuleysisbóta samhliða formlegu námi þar til réttur til námslána skapast.