2F – Hús Fagfélaganna

Að 2F Húsi Fagfélaganna standa:

> Byggiðn félag byggingamanna – www.byggidn.is
> FIT Félag iðn- og tæknigreina – www.fit.is
> MATVÍS – www.matvis.is
> Rafiðnaðarsamband Íslands – www.rafis.is
> Samiðn samband iðnfélaga – www.samidn.is
Skrifstofan leigir auk þess og þjónustar VIRK- Starfsendurhæfingarsjóð (www.virk.is)

Félögin fluttu í sameiginlegt endurbætt húsnæði að Stórhöfða 31 á vormánuðum 2019 með það að markmiði að auka samstarf þeirra og ekki síst þjónustuna við félagsmenn. Félögin hafa undanfarin ár haft ríkulegt samstarf við gerð kjarasamninga og komið sameiginlega að málum er varða hagsmuni iðnaðarmanna svo ákveðið var að stíga skrefið til fulls og formgera samstarfið í sameiginlegu húsnæði og samstarfi um rekstur.

Helstu verkefni:

Ýmis stoðþjónusta er lýtur að rekstri og þjónustu við starfsfólk félaganna og félagsmenn þeirra.

2F – Hús Fagfélaganna er til húsa að Stórhöfða 31 og er opið frá kl. 8 til 16 (einum tíma skemur á föstudögum). Sími skrifstofunnar er 5400100 og vefur www.2f.is.